spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaDarri og Francisco kynntir sem nýjir þjálfarar KR

Darri og Francisco kynntir sem nýjir þjálfarar KR

KR kynnti nýja þjálfara Dominos deildarliða sinna á blaðamannafundi í hádeginu. Verður það Darri Freyr Atlason sem tekur við karlaliði félagsins af Inga Þór Steinþórssyni og Francisco Garcia sem tekur við kvennaliðinu af Benedikt Rúnari Guðmundssyni.

Darri Freyr er að upplagi KR-ingur, sem síðustu þrjú tímabil hefur þjálfað Val í Dominos deild kvenna með góðum árangri. Síðustu tvö tímabil unnið deildarmeistaratitilinn og bæði bikar og Íslandsmeistaratitil tímabilið 2018-19.

Spánverjinn Francisco Garcia hefur þjálfað lið í heimalandinu, bæði í efstu deild, sem og yngri landslið þjóðarinnar.

Þá kynnti félagið einnig nýjan yfirþjálfara yngri flokka, Brynjar Þór Björnsson, en hann framlengdi í leiðinni samning sínum sem leikmaður KR næstu tvö árin.

Fréttir
- Auglýsing -