spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaOrri og Friðrik áfram með Stjörnunni

Orri og Friðrik áfram með Stjörnunni

Stjarnan samdi á dögunum við þá Friðrik Anton Jónsson og Orra Gunnarsson komandi átök í Dominos deildinni, en þeir eru tveir af efnilegri leikmönnum félaagsins.

Eru þeir á 17. og 18. ári og má því gera ráð fyrir að þeir leiki einnig með samstarfsfélagi Stjörnunnar í fyrstu deildinni, Álftanesi á komandi tímabili.

Báðir hafa leikmennirnir verið hlutar af yngri landsliðum Íslands á síðustu árum.

Fréttir
- Auglýsing -