Þjálfari íslenska A landsliðs kvenna, fyrrum þjálfari KR, Benedikt Guðmundsson, hefur ákveðið að taka við 9. og 10. flokk drengja og minnibolta drengja og stúlkna hjá Fjölni. Staðfestir Benedikt þetta í samtali við vefmiðilinn mbl.is.
Benedikt tilkynnti það á dögunum að hann hefði yfirgefið KR, en hann er KR-ingur að upplagi. Hefur hann þjálfað meistaraflokk karla hjá KR, Þór, Þór Akureyri, Grindavík og Fjölnir í efstu deild karla.