spot_img
HomeFréttirÞáttur 5 af The Last Dance verður tileinkaður Kobe Bryant

Þáttur 5 af The Last Dance verður tileinkaður Kobe Bryant

Fimmti þáttur heimildarþátta ESPN um Michael Jordan og 1997-98 Chicago Bulls tímabilið, The Last Dance, verður tileinkaður fyrrum leikmanni Los Angeles Lakers, Kobe Bryant.

Þátturinn erður frumsýndur í kvöld, en kemur inn á Netflix hér á landi snemma í fyrramálið.

Brynt var einn af mörgum íþróttamönnum sem teknir voru í viðtal fyrir þættina, en ásamt honum voru þar fyrrum forsetar Bandaríkjanna, Barack Obama og Bill Clinton, tónlistarmaðurinn Justin Timberlake og framkvæmdarstjóri deildarinnar, Adam Silver, svo einhverjir séu nefndir.

Samband Jordan við Bryant var sterkt allt þangað til að hann dó í þyrluslysi þann 26. janúar síðastliðinn. Hér fyrir neðan er hægt að sjá ræðu Jordan við minningarathöfn Bryant sem haldin var í febrúar.

Fréttir
- Auglýsing -