spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaElvar Már hafði hægt um sig í öruggum sigri

Elvar Már hafði hægt um sig í öruggum sigri

Elvar Már Friðriksson og Rytas lögðu Jonava í dag í LKL deildinni í Litháen, 62-75.

Rytas eru eftir leikinn í öðru sæti deildarinnar með 13 sigra og 4 töp það sem af er tímabili, en þeir eru 2 sigurleikjum frá Zalgiris sem sitja í efsta sætinu.

Elvar hafði hægt um sig á þeim tæpu 18 mínútum sem hann spilaði í leiknum, skilaði tveimur stigum, tveimur stoðsendingum og stolnum bolta.

Næsti leikur Rytas í deildinni er þann 11. febrúar gegn Gargzdai.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -