KR hefur ákveðið að opna sjónvarp sitt, KRTV á meðan að samkomubanni stendur. Samkvæmt tilkynningu frá félaginu er þetta gert til þess að stytta fólki stundir.
Þá hvetja þeir í leiðinni stuðningsfólk sitt til þess að standa saman og hafa hrundið af stað miða og hamborgarasölu fyrir leiki í úrslitakeppninni sem aldrei fara fram.
Frekari upplýsingar er hægt að sjá í tilkynningu þeirra hér fyrir neðan.
Tilkynning:
Stöndum Saman – Sláum aðsóknarmet í DHL-höllina!
Í ljósi þess að úrslitakeppnin hefur verið blásin af og KKD KR orðið fyrir verulegum tekjumissi þá ætlum við að slá aðsóknarmetið í DHL-Höllinni með því að selja miða á leik sem mun ekki fara fram eins og gefur að skilja. Aðsóknarmetið er 2500 manns og það er von deildarinnar að sem flestir taki þátt í þessu verkefni og saman slái það met og um leið styrki við starf og rekstur deildarinnar.
Það eru 2 möguleikir í boði með því að smella hér:
1) Burger, drykkur og miði á leikinn 4000kr
2) Miði á leikinn 2500 kr
Einnig að taka fram að hægt er að millifæra á reikning KKD KR – Banki: 0137-26-45, kt. 510987-1449.
Það er sárt að engin úrslitakeppni fari fram í ár en þar eigum við KR-ingar margar góðar minningar. Til að rifja upp góðar minningar þá mun KRTV vera opið á meðan á samkomubanni stendur. Þar er fjársjóður leikja og svo sannarlega gaman að fara aftur í tímann og skoða þessa leiki.
ÁFRAM KR og kærar þakkir fyrir stuðninginn!