spot_img
HomeFréttirNettómótið fer fram um helgina - Mótshaldarar í sambandi við sóttvarnarsvið landlæknis...

Nettómótið fer fram um helgina – Mótshaldarar í sambandi við sóttvarnarsvið landlæknis “Engin áform eru um að fella mótið niður”

Eitt stærsta körfuboltamót ár hvert er Nettómótið, en það fer fram í Keflavík og Njarðvík komandi helgi.

Koma þar saman um 1000 börn og 2000 foreldrar og fylgdaraðilar frá 25 félögum allstaðar af landinu.

Í ljósi útbreiðslu Covid-19 veirunnar síðustu vikur og mánuði í heiminum, þar með talið á Íslandi, sendu mótshaldarar frá sér eftirfarandi tilkynningu á dögunum. Þar er tekið fram að þeir hafi verið í sambandi við sóttvarnarsvið landlæknis og að engin ástæða sé til þess að falla frá fyrirhuguðum áformum, eða fresta mótinu.

Tilkynninguna má lesa í heild hér fyrir neðan.

Ágætu mótsgestir

Töluverð umræða hefur eðlilega verið í þjóðfélaginu varðandi COVID-19 veiruna og af því tilefni hafa nokkrar fyrirspurnir borist mótshöldurum um hvort af mótinu verði.

Af því tilefni skal áréttað, að engin áform eru um að fella mótið niður.  Mótshaldarar hafa verið í samband við sóttvarnarsvið landlæknis og engin ástæða er talin til að falla frá fyrirhuguðum áformum. 

Lögð verður áhersla á almennt hreinlæti með sérstaka áherslu á handhreinsun samkvæmt ráðleggingum. Eins er biðlað til fólks sem verið hefur að finna fyrir lasleika, verið á skilgreindum hættusvæðum s.l. 14 daga, eða sent í sóttkví, að halda sig frá mótsstöðum sem og öðrum almenningsstöðum.

Á mótsstað mun jafnframt verða aðgengilegt handspritt með sýnilegum hætti og leiðbeiningar verða settar upp sem víðast með hvatningu um almennt hreinlæti og handþvott.

Mótshaldarar munu fara að öllu með gát og gefa út frekari leiðbeiningar hér á heimasíðunni og dreifa til allra liða með öðrum gögnum. 

Íþróttasamband Íslands hefur jafnframt sent aðildarfélögunum sínum fjölpóst og vakið athygli á að fylgjast með nýjustu uppfærslum á vefsíðu embættis landlæknis:

Embætti landlæknis uppfærir reglulega upplýsingar á vefsíðu landlæknis hér.

Bestu kveðjur

KarfaNhagsmunafélag

Dear Participants,

There has been a lot of discussion lately about the COVID-19 virus. Because of all the concerns, regarding the virus, a few inquiries have been sent to the organizers if the tournament is still going to happen.

With all that being said, there is no intention in cancelling the tournament. The organizers have been in touch with the field of epidemiology of the Medical Director of Health and they found no reason to cancel the plans.

We will emphasize on general hygiene with a special emphasis on handwashing, according to recommendations. We also ask people that have been feeling sick, been in the predefined „danger zones“ in the last 14 days or have been sent to quarantine, to please stay away from tournament accommodations as well as other public places.

At the tournament accommodations there will be visibly accessible hand sanitizer as well as instructions around the area where guests are encouraged of general hygiene and hand washing.

The organizers will be careful, more detailed instructions will be published here on this website and distributed to all teams along with other documents.

The National Olympic and Sports Association of Iceland (ÍSÍ) has also sent all their members a mail and asked people to pay attention to the latest updated on the website of the Medical Director of Health.

The Medical Director of Health frequently updates their information on this website

Best regards

KarfaNhagsmunafélag

Fréttir
- Auglýsing -