spot_img
HomeFréttirSkráning hafin - Molduxamótið 2020

Skráning hafin – Molduxamótið 2020

Hið árlega Molduxamót í hinni fallegu íþrótt körfubolta, verður haldið laugardaginn 14. mars 2020 í íþróttahúsinu á Sauðárkróki (Síkinu).
Mótið verður með sama sniði og á síðasta ári:

Karlar 40+ ára
Karlar 30+ ára
Kvennaflokkur

Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá Val Valssyni í síma 861 9802 eða í netfanginu: [email protected]

Að loknu móti er síðan gert ráð fyrir kvöldverði og kvöldvöku. Liðin eru hvött til að koma með gott atriði fyrir kvöldvökuna.

Nánari upplýsingar um mótið og tilhögun þess verða svo birtar á fésbókarsíðunni Vormót Molduxa þegar nær dregur móti.

Takið þessa helgi frá og mætum öll með góða skapið og keppnisandann í lagi.

Fréttir
- Auglýsing -