Hamar lagði Hrunamenn á Flúðum í gærkvöldi í fyrstu deild karla, 89-91. Undir lokin var það þristur frá Elíasi Bjarka Pálssyni sem vann leikinn fyrir Hamar. Eftir leikinn er Hamar í 2. sæti deildarinnar með 30 stig á meðan að Hrunamenn eru í 6. sætinu með 14 stig.
Karfa spjallaði við Halldór Karl Þórsson þjálfara Hamars eftir leik á Flúðum.