Þróttur Vogum hefur samið við Arnór Sveinsson um að leika með liðinu út yfirstandandi tímabil í 2. deild karla á venslasamning.
Arnór er 23 ára bakvörður sem kemur til Þróttar frá toppliði Keflavíkur í Subway deildinni þar sem hann hefur mest af leikið undanfarin ár, en hann hefur einnig verið á mála hjá Hamri og Njarðvík.
Þróttur er sem stendur í efsta sæti annarar deildarinnar, taplausir eftir fyrstu 12 leiki sína.