Þróttur Vogum hefur samið við Magnús Pétursson um að leika með liðinu út yfirstandandi tímabil í 2. deild karla á venslasamning.
Magnús er 21 árs bakvörður sem kemur til Þróttar frá toppliði Keflavíkur í Subway deildinni þar sem hann hefur leikið undanfarin ár. Þróttur er sem stendur í efsta sæti annarar deildarinnar, taplausir eftir fyrstu 12 leiki sína.