Snorri Vignisson og félagar í The Hague Royals máttu þola tap í kvöld fyrir Heroes Den Bosch í BNXT deildinni í Hollandi, 54-97.
Eftir leikinn eru Royals í 11. sæti deildarinnar með einn sigur og ellefu töp það sem af er tímabili.
Á 24 mínútum spiluðum skilaði Snorri 5 stigum, 4 fráköstum, stoðsendingu, stolnum bolta og vörðu skoti.
Næsti leikur Snorra og Royals er þann 2. janúar gegn ZZ Leiden.