Martin Hermannsson og Valencia máttu þola tap í kvöld fyrir Breogán í ACB deildinni á Spáni, 97-98.
Eftir leikinn er Valencia í 7. sæti deildarinnar með sjö sigra og sex töp það sem af er tímabili.
Á rúmum 20 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 19 stigum, 3 stoðsendingum og stolnum bolta.
Næsti leikur Valencia í deildinni er á Þorláksmessu gegn Monbus Obradoiro.