spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÆgir Þór öflugur er Alicante lagði Cantabria í spennuleik

Ægir Þór öflugur er Alicante lagði Cantabria í spennuleik

Ægir Þór Steinarsson og Alicante lögðu Cantabria í gærkvöldi með minnsta mun mögulegum í Leb Oro deildinni á Spáni, 78-77.

Alicante eru eftir leikinn í 4. sæti deildarinnar með 12 sigra og sex töp það sem af er tímabili.

Ægir Þór átti ágætisleik fyrir liðið í þessum nauma sigri, skilaði 7 stigum, 4 fráköstum og 5 stoðsendingum.

Næsti leikur Ægis og Alicante er þann 31. janúar gegn Albacete.

Fréttir
- Auglýsing -