spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi með troðslusýningu er Zaragoza lagði Andorra

Tryggvi með troðslusýningu er Zaragoza lagði Andorra

Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza lögðu í kvöld Morabanc Andorra í ACB deildinni á Spáni, 83-92.

Eftir leikinn eru Zaragoza í 12. sæti deildarinnar með fimm sigra og níu töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 22 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi Snær 14 stigum og 4 fráköstum, en hann tróð boltanum í heil fimm skipti í leiknum.

Næsti leikur Tryggva og Zaragoza í deildinni er á milli jóla og nýárs, þann 28. desember, gegn Baskonia.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -