spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaSara Rún og Phoenix lágu gegn Alexandria

Sara Rún og Phoenix lágu gegn Alexandria

Sara Rún Hinriksdóttir og Phoenix Constanta máttu þola tap í dag fyrir Alexandria í rúmensku úrvalsdeildinni, 52-58.

Eftir leikinn er Phoenix í 6. sæti deildarinnar með 3 sigra og 7 töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 25 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sara Rún fimm stigum, fimm fráköstum og 2 stoðsendingum.

Næsti leikur Söru og Phoenix er á Þorláksmessu gegn Rapid Búkarest.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -