Jón Axel Guðmundsson og Fortitudo Bologna lögðu Trieste í kvöld í úrvalsdeildinni á Ítalíu, 96-60.
Eftir leikinn eru Bologna í 15. sæti deildarinnar með þrjá sigra og 8 töp það sem af er tímabili.
Á 18 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Jón Axel 7 stigum, 5 fráköstum og 4 stoðsendingum.
Næsti leikur Fortitudo Bologna er þann 19. desember gegn Virtus Segafredo Bologna