Róbert Sean Birmingham og ungmennalið Baskonia unnu Valle de Egues í dag í EBA deildinni á spáni, 62-100.
Baskonia er sem áður í efsta sæti deildarinnar með 12 sigra og 2 töp það sem af er tímabili, en sigurinn í dag var þeirra áttundi í röð.
Á tæpum 13 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Róbert 6 stigum og 3 fráköstum.
Næsti leikur Róberts og Baskonia í deildinni er þann 18. desember gegn Mondragon.