Keflavík lagði Tindastól í kvöld í 9. umferð Subway deildar karla, 93-84. Eftir leikinn er Keflavík í efsta sæti deildarinnar með 16 stig á meðan að Tindastóll er í 4. sætinu með 12 stig.
Karfan spjallaði við Hjalta Þór Vilhjálmsson þjálfara Keflavíkur eftir leik í Blue Höllinni. Miðherji Keflavíkur David Okeke meiddist þegar 5 mínútur voru eftir af leiknum og þurftu sjúkraflutningamenn að bera hann af vellinum. Sagði Hjalti eftir leik að við fyrstu sýn væri haldið að um hásinarslit væri að ræða.