Snorri Vignisson og Hague Royals máttu þola tap í kvöld fyrir Feyenoord í hollensku BNXT deildinni, 103-69.
Royals eru eftir leikinn í 9. sæti deildarinnar með einn sigur og níu töp það sem af er tímabili.
Á rúmum 29 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Snorri 14 stigum, 6 fráköstum, 2 stoðsendingum, stolnum bolta og vörðu skoti, en hann var næst framlagshæstur í liði Royals í leiknum.
Næsti leikur Snorra og Royals er gegn Appolo þann 19. desember.