KR lagði ÍR í kvöld í Hellinum í fyrstu deild kvenna, 70-73. Eftir leikinn er ÍR enn í efsta sæti deildarinnar með 16 stig á meðan að KR er í 3.-4. sætinu með 12 stig líkt og Þór Akureyri.
Karfan spjallaði við Perlu Jóhannsdóttur fyrirliða KR eftir leik í Hellinum. Perla átti fínan leik í kvöld, skilaði 10 stigum, 3 fráköstum og 3 stoðsendingum á um 31 mínútu spilaðri.