Dagur Kár Jónsson og Oursense máttu þola tap í dag fyrir Burgos í Leb Plata deildinni á Spáni, 80-74.
Þrátt fyrir tapið er Oursense í efsta sæti b hluta deildarinnar, nú með sjö sigra og eitt tap.
Á um 15 mínútum spiluðum skilaði Dagur Kár 7 stigum, frákasti og 2 stoðsendingum.
Næsti leikur Oursense er þann 11. desember gegn Taldea.