spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaSigurganga Þóru og Ástrósar heldur áfram í Danmörku

Sigurganga Þóru og Ástrósar heldur áfram í Danmörku

Þóra Kristín Jónsdóttir, Ástrós Lena Ægisdóttir og AKS Falcon lögðu Sisu í gærkvöldi í dönsku úrvalsdeildinni, 51-44.

AKS hafa farið vel af stað þetta tímabilið, unnið alla sex leiki sína og sitja í efsta sæti deildarinnar.

Á 26 mínútum spiluðum skilaði Þóra Kristín 3 stigum, 6 fráköstum, 2 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.

Ástrós Lena lék sléttar 10 mínútur og var með 2 stig og frákast.

Næsti leikur AKS er þann 11. desember gegn BMS Herlev.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -