spot_img
HomeFréttirFrábær leikur Sigrúnar ekki nóg gegn Georgia State

Frábær leikur Sigrúnar ekki nóg gegn Georgia State

Sigrún Björg Ólafsdóttir og Chattanooga Mocs töpuðu í kvöld fyrir Georgia State Panthers í bandaríska háskólaboltanum, 77-66.

Leikurinn sá þriðji í röð sem Mocs tapa, en á tímabilinu í heild hafa þær unnið einn leik og tapað fimm.

Sigrún Björg var atkvæðamikil í liði Mocs í kvöld, á 33 mínútum spiluðum var hún með 13 stig, 6 fráköst, 2 stoðsendingar og 2 stolna bolta.

Næsti leikur Sigrúnar og Mocs er gegn UAB Blazers þann 30. nóvember.

Tölfræði leiks

  • ESPN Player mun sýna yfir 2000 leiki í vetur
  • Fylgstu með með því að gerast áskrifandi hér: https://bit.ly/ESPNKarfan
  • Öllum nýjum áskriftum fylgir 7 daga frí prufa
  • ESPN Player smáforritið er aðgengilegt á spjaldtölvum, símum og Android Tv
  • ESPN Player er aðeins á ensku
Fréttir
- Auglýsing -