Bjarni Guðmann Jónsson og Fort Hays State Tigers lögðu í nótt lið Central Christian í bandaríska háskólaboltanum, 40-82.
Með sigrinum héldu Fort Hays sigurgöngu sinni áfram, en það sem af er tímabili hafa þeir unnið alla þrjá leiki sína.
Á 18 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Bjarni 6 stigum, 2 fráköstum, 3 stoðsendingum og vörðu skoti.
Næsti leikur Bjarna og Fort Hays er þann 28. nóvember gegn Manhattan Christian.
- ESPN Player mun sýna yfir 2000 leiki í vetur
- Fylgstu með með því að gerast áskrifandi hér: https://bit.ly/ESPNKarfan
- Öllum nýjum áskriftum fylgir 7 daga frí prufa
- ESPN Player smáforritið er aðgengilegt á spjaldtölvum, símum og Android Tv
- ESPN Player er aðeins á ensku