Jón Axel Guðmundsson og Fortitudo Bologna máttu þola tap í kvöld fyrir Trentino í ítölsku úrvalsdeildinni, 84-77.
Eftir leikinn eru Bologna í 15. sæti deildarinnar með tvo sigra og sjö töp það sem af er tímabili.
Jón Axel hafði hægt um sig í stigaskorun í leiknum, en á 18 mínútum spiluðum skilaði hann einu sitigi og fimm fráköstum.
Næsti leikur Jóns og Bologna í deildinni er 5. desember gegn Tortona.