Ægir Þór Steinarsson og Acunsa GBC lögðu Girona í dag í Leb Oro deildinni á Spáni, 85-81.
Eftir leikinn eru Acunsa í 8. sæti deildarinnar með fimm sigra og fjögur töp það sem af er tímabili.
Á rúmum 28 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Ægir 18 stigum, 4 fráköstum og 2 stoðsendingum.
Næsti leikur Acunsa í deildinni er eftir landsleikjahlé, þann 5. desember gegn Oviedo.