Sigrún Björg Ólafsdóttir og Chattanooga Mocs máttu þola tap í nótt fyrir Murray State Racers í bandaríska háskólaboltanum, 78-55.
Það sem af er tímabili hafa Mocs unnið einn leik en tapað þremur.
Á 33 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sigrún 7 stigum, 2 fráköstum og 4 stoðsendingum, en hún var ásamt Abbey Cornelius stðsendingahæst í liði Mocs í leiknum.
Næsti leikur Mocs er þann 24. nóvember gegn Kennesaw State Owls.
- ESPN Player mun sýna yfir 2000 leiki í vetur
- Fylgstu með með því að gerast áskrifandi hér: https://bit.ly/ESPNKarfan
- Öllum nýjum áskriftum fylgir 7 daga frí prufa
- ESPN Player smáforritið er aðgengilegt á spjaldtölvum, símum og Android Tv
- ESPN Player er aðeins á ensku