Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza máttu þola tveggja stiga tap í kvöld fyrir Gilboa Galil í FIBA Europe Cup, 68-70.
Eftir leikinn er Zaragoza í 3.-4. sæti D riðils með einn sigur og fjögur töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 23 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi 8 stigum, 5 fráköstum, stolnum bolta og 2 vörðum skotum, en hann var næst framlagshæstur í liði Zaragoza í kvöld.
Næsti leikur Tryggva og Zaragoza í keppninni er þann 17. nóvember gegn Reggio Emilia.
Upptaka af leiknum: