Sara Rún Hinriksdóttir og Phoenix Constanta lögðu Targu Mures í dag í rúmensku úrvalsdeildinni, 62-58.
Eftir leikinn eru Phoenix í 4. sæti deildarinnar með þrjá sigra og þrjú tapaða það sem af er tímabili
Á rúmum 36 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sara Rún 13 stigum, 4 fráköstum, 4 stoðsendingum og 5 stolnum boltum, en hún var framlagshæst í liði Phoenix í dag.
Næsti leikur Phoenix í deildinni er eftir landsleikjahlé, þann 20. nóvember gegn Triumf Botosani.