Fjórir leikir voru á dagskrá VÍS bikarkeppninnar í dag.
Bikarmeistarar Njarðvíkur lögðu Álftanes í Forsetahöllinni, Valur vann Breiðablik í Smáranum, Stjarnan hafði betur gegn Tindastól í Síkinu og í HS Orku Höllinni báru heimamenn í Grindavík sigurorð af Hetti.
Sextán liða úrslitin klárast svo á morgun með fjórum viðureignum.
Úrslit dagsins
VÍS bikar karla
Álftanes 84 – 100 Njarðvík
Breiðablik 68 – 78 Valur
Tindastóll 78 – 79 Stjarnan
Grindavík 86 – 74 Höttur