spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÆgir reyndist sínu gamla félagi erfiður ljár í þúfu

Ægir reyndist sínu gamla félagi erfiður ljár í þúfu

Ægir Þór Steinarsson hafði betur gegn sínum gömlu félögum er Alicante lagði TAU Castello í kvöld í Leb Oro deildinni á Spáni, 74-70.

Eftir leikinn er Alicante í 5. sæti deildarinnar með ellefu sigra og fimm töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 26 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Ægir 7 stigum, 3 fráköstum og 6 stoðsendingum, en hann var framlagshæstur í liði Alicante í kvöld með 19 framlagspunkta fyrir frammistöðuna.

Næsti leikur Ægis og Alicante er þann 27. janúar gegn Cantabria.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -