Þóra Kristín Jónsdóttir, Ástrós Lena Ægisdóttir og AKS Falcon lögðu í dag lið SISU í dönsku úrvalsdeildinni, 70-78.
Falcon er eftir leikinn á toppi deildarinnar ásamt BK Amager, en bæði hafa liðin unnið þrjá leiki það sem af er tímabili.
Á rúmum 19 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Þóra Kristín 8 stigum, frákasti, stoðsendingu og 3 stolnum boltum á meðan að Ástrós Lena lék tæpar 13 mínútur og var með 3 stig, 2 fráköst og 2 stolna bolta.
Næsti leikur Falcon í deildinni er þann 29. október gegn botnliði BMS Herlev.