Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Casademont Zaragoza máttu þola tap í kvöld fyrir stórliði Barcelona í ACB deildinni á Spáni, 76-63.
Á tæpum 14 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi 4 stigum og 3 fráköstum.
Eftir leikinn eru Zaragoza í 15. sæti deildarinnar með tvo sigra og þrjú töp það sem af er tímabili.
Næsti leikur Tryggva og Zaragoza er útileikur gegn Lenovo Tenerife komandi laugardag 9. október.