spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaNaor Sharabani semur við Grindavík

Naor Sharabani semur við Grindavík

Grindavík hefur samið við bakvörðinn Naor Sharbani um að leika með liðinu á komandi tímabili í úrvalsdeild karla.

Naor er 26 ára gamall frá Ísrael og einnig með franskt vegabréf, en síðast lék hann fyrir Maccabi Haifa í heimalandinu.

Naor er ekki ókunnur íslenskum körfubolta því hann lék með Valsmönnum tímabilið 2019/2020. Hann lék með Valsmönnum seinni hlutann af tímabilinu og var með 14 stig að meðaltali og gaf 7 stoðsendingar í leik.

Um leikmanninn hefur Daníel Guðni Guðmundsson að segja um Naor:

„Við erum mjög ánægðir með að vera búnir að finna leikstjórnenda sem mun leysa Dag Kár af hólmi. Við þurftum að bregðast hratt við og er mjög sáttir með að fá Naor til liðs við okkur. Þetta er öflugur leikmaður sem mun styrkja okkar lið,“

Bert er ráð fyrir að Naor komi til landsins í vikunni og verði vonandi með liðinu í fyrstu umferð gegn Þór Akureyri nú á föstudaginn.

Fréttir
- Auglýsing -