Undir 18 ára drengjalið Íslands tapaði lokaleik sínum á Norðurlandamótinu í Kisakallio í dag fyrir verðandi meisturum Svíþjóð. Lokastaða Íslands því fjórða sætið, með einn sigur og þrjá tapaða.
Karfan spjallaði við leikmann liðsins Almar Orra Atlason eftir leik í Kisakallio, en hann var að móti loknu valinn í fimm manna stjörnulið þess.