spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Danskur dagur á Norðurlandamótinu í Kisakallio

Leikir dagsins: Danskur dagur á Norðurlandamótinu í Kisakallio

Undir 18 ára lið stúlkna og drengja leika bæði í dag gegn Danmörku á Norðurlandamótinu í Kisakallio. Stúlkurnar eiga leik kl. 11:00 að íslenskum tíma á meðan að strákarnir eiga leik kl. 16:30.

Bæði lið voru í fríi í gær, töpuðu deginum áður fyrir Finnlandi, en unnu á fyrsta degi gegn Eistlandi. Áhugavert verður að sjá hvernig þau koma til baka eftir að hafa bæði tapað nokkuð stórt fyrir Finnlandi á þriðjudaginn.

Hérna er 12 manna landslið undir 18 ára stúlkna

Hérna er 12 manna landslið undir 18 ára drengja

Allir leikir mótsins verða í beinni tölfræðilýsingu, útsendingu og þá verða fluttar fréttir af þeim hér á Körfunni.

Hérna er skipulag Íslands á mótinu

Tölfræðilýsingarnar og fréttirnar af Körfunni verða að sjálfsögðu fríar, en fyrir beinar útsendingar þarf að greiða. Það er fyrirtækið Solid Sport sem sér um útsendingarnar og hægt er að kaupa allt mótið fyrir 2931 kr. (19.9 EUR) og staka leiki fyrir 1016 kr (6.9 EUR)

Hérna er hægt að kaupa aðgang að beinum útsendingum

Hérna verða beinar tölfræðilýsingar

Fréttir
- Auglýsing -