Undir 18 ára stúlknalið Íslands lagði Eistland í dag í fyrsta leik sínum á Norðurlandamótinu í Kisakallio í Finnlandi, 39-64.
Karfan spjallaði við Vilborgu Jónsdóttir fyrirliða liðsins eftir leik í Kisakallio. Ásamt því að spila hörkuvörn allan leikinn skilaði Vilborg 4 stigum, 3 fráköstum og 4 stoðsendingum á um 25 mínútum spiluðum í dag.