Íslenska karlalandsliðið mátti þola tap í kvöld fyrir heimamönnum í Svartfjallalandi í fyrsta leik sínum í forkeppni undankeppni heimsmeistaramótsins 2023. Leikið riðilsins fara allir fram á næstu vikunni í sóttvarnabúbblu ytra, en næsti leikur liðsins er á morgun gegn þriðja liði riðilsins, Danmörku.
Fréttaritarar Körfunnar í Svartfjallalandi ræddu við Craig Pedersen þjálfara liðsins eftir leik í Bemax höllinni í Podgorica.