spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær stigahæstur gegn Tenerife

Tryggvi Snær stigahæstur gegn Tenerife

Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza máttu þola tap í framlengdum leik gegn Tenerife í kvöld í ACB deildinni á Spáni, 83-87.

Eftir leikinn er Zaragoza í 15. sæti deildarinnar með fimm sigra það sem af er tímabili.

Á um 33 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi 24 stigum, 6 fráköstum og stoðsendingu.

Næsti leikur Tryggva og Zaragoza er þann 22. janúar gegn Valencia.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -