Í vikunni var fyrsta skóflustungan tekin að Garðinum hans Gústa sem mun rísa á skólalóð Glerárskóla á Akureyri. Völlurinn er reistur í minningu Ágústar Guðmundssonar körfuknattleiksþjálfara sem lést í upphafi árs langt um aldur fram eftir baráttu við veikindi.
Vinir Gústa standa að verkefninu en “Garðurinn” á að vera veglegur körfuboltavöllum með áhorfendastúku og við verklok verður völlurinn afhentur Akureyrarbæ í nafni Ágústar. Nafnið Garðurinn hans Gústa kemur til vegna áhuga Ágústs á NBA liðinu Boston Celtic. Í frétt Akureyri.net sem greindi frá þessu segir:
Ágúst, sem lést í upphafi árs langt fyrir aldur fram, markaði djúp spor í sögu körfuboltaíþróttarinnar á Akureyri. Hann lék með Þór á yngri árum, þjálfaði síðan hjá félaginu til fjölda ára og er sigursælasti þjálfari þess frá upphafi. Ágúst starfaði mest við þjálfaun í íþróttahúsi Glerárskóla og því fannst vinum hans við hæfi að völlurinn yrði við þann skóla.
„Ágúst var harður Boston Celtics aðdáandi og því lá það beinast við að körfuboltavöllurinn fengi nafnið Garðurinn,“ sagði í tilkynningu frá hópnum fyrr á árinu, en heimavöllur Boston Celtics hefur langi gengið undir þessu nafni; Boston Garden var ein frægasta keppnishöll í sögu bandarísku NBA deildarinnar en núverandi höll félagsins kallst TD Garden.
Fyrsta skóflustunguna að Garðinum hans Gústa tóku Ásgerður Jana og Berglind Eva, dætur Ágústs heitins og eiginkona hans, Guðrún Gísladóttir. Körfuboltamaðurinn Júlíus Orri, sonur Ágústs og Guðrúnar, gat ekki tekið þátt því hann er á landsliðsæfingum í ReykjavíkViðstaddir athöfnina voru m.a. foreldrar Ágústs og systur, foreldrar Guðrúnar, körfuboltavinir Ágústs sem standa að gerð vallarins, og bæjarstjórinn á Akureyri, Ásthildur Sturludóttir.
Vert er að minna á fjársöfnun vegna verkefnisins, en þeir félagar ætla að safna fyrir helmingi kostnaðar en Akureyrarbær leggur til hinn helminginn. Reikningsnúmer söfnunarinnar er 0302-26-000562. Kennitala: 420321-0900.
Mynd: Skapti Hallgrímsson – Akureyri.net