Sá orðrómur flýgur nú fjöllum hærra að fyrrum leikmaðurinn Pavel Ermolinski muni taka við þjálfun liðs Tindastóls í Subway deild karla. Tindastóll tilkynnti það á dögunum að félagið hefði sagt upp samningi sínum við Vladimir Anzulovic og að Svavar Atli Birgisson og Helgi Freyr Margeirsson og Ísaki Óla Traustason myndu þjálfa liðið fyrst um sinn.
Pavel Ermolinskij lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil sem Íslandsmeistari með Val, en ásamt því að hafa leikið fyrir þá lék hann lengst af fyrir KR, þar sem hann vann sex Íslandsmeistaratitla, ÍR, Skallagrím, ÍA, nokkur félög á meginlandi Evrópu og 76 landsleiki fyrir Íslands hönd.
Liði Tindastóls hefur gengið misvel að ná í sigra það sem af er deildarkeppni Subway deildarinnar, en liðið hefur unnið sex leiki, tapað sex og er í 7. sætinu.