spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaHvort nær Hamar eða Vestri yfirhöndinni í kvöld í úrslitum fyrstu deildarinnar?

Hvort nær Hamar eða Vestri yfirhöndinni í kvöld í úrslitum fyrstu deildarinnar?

Hamar tekur á móti Vestra í kvöld í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvígi fyrstu deildar karla.

Fyrsta leik seríunnar vann Hamar á heimavelli í Hveragerði áður en Vestri jafnaði einvígið í leik tvö á Ísafirði.

Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki mun fylgja deildarmeisturum Breiðabliks upp í efstu deild á næsta tímabili.

Leikur dagsins

Fyrsta deild karla:

Hamar Vestri – kl. 19:15

Einvígið er jafnt 1-1

Fréttir
- Auglýsing -