Hilmar Pétursson og Munster máttu þola tap í kvöld fyrir Tubingen í Pro B deildinni í Þýskalandi, 84-79.
Eftir leikinn eru Munster í 13. sæti deildarinnar með sex sigra og tíu töp það sem af er tímabili.
Á rúmum 29 mínútum spiluðum í leiknum var Hilmar með 18 stig, 5 fráköst og 4 stoðsendingar.