spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaStórt tap Tryggva og félaga gegn Tenerife

Stórt tap Tryggva og félaga gegn Tenerife

Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza máttu þola tap í næst síðasta leik tímabilsins í kvöld gegn Tenerife í ACB deildinni á Spáni, 60-91. Eftir leikinn eru Zaragoza í 13. sæti deildarinnar með 14 sigra og 21 tap það sem af er tímabili.

Á tæpum 11 mínútum spiluðum skilaði Tryggvi Snær 4 stigum og frákasti. Síðasti leikur deildarkeppni Zaragoza er komandi sunnudag 23. maí gegn Murcia.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -