Stjarnan varð um helgina Íslandsmeistari í minnibolta 10 ára stúlkna á Flúðum. Vann liðið alla fimm leiki helgarinnar, en í sætunum fyrir aftan þær voru Keflavík, Haukar, Grindavík, Ármann og Breiðablik. Hér fyrir ofan er mynd af Íslandsmeisturunum nýkrýndu með þjálfara sínum Kjartani Atla Kjartanssyni.
Mynd / KKÍ