Tveir leikir fóru fram í 8 liða úrslitum fyrstu deildar karla í kvöld.
Selfoss lagði Sindra á Höfn í Hornafirði og í Forsetahöllinni á Álftanesi bar Skallagrímur sigur úr býtum gegn heimamönnum.
Áður höfði Hamar klárað einvígi sitt gegn Hrunamönnum 2-0 og sömuleiðis Vestri gegn Fjölni 2-0.
Liðin sem eftir eru og sæti þeirra í deildarkeppni:
Hamar (2)
Vestri (4)
Skallagrímur (6)
Selfoss (8)
Í undanúrslitunum munu því mætast Hamar og Selfoss annarsvegar, en hinsvegar Vestri og Skallagrímur.
Leikir dagsins
Fyrsta deild karla:
Sindri 70 – 79 Selfoss
Álftanes 79 – 92 Skallagrímur