spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær frákastahæstur í sigri gegn Manresa

Tryggvi Snær frákastahæstur í sigri gegn Manresa

Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza lögðu Manresa í ACB deildinni á Spáni í kvöld, 65-72.

Zaragoza eru eftir leikinn í 15. sæti deildarinnar með 4 sigra og 11 töp það sem af er tímabili.

Á rúmum 16 mínútum spiluðum í leiknum var Tryggvi með 2 stig, 8 fráköst, stoðsendingu og 3 varin skot.

Næsti leikur Tryggva og Zaragoza er þann 14. janúar gegn Tenerife.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -