spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaEva eftir leik í TM Hellinum "Við getum alveg unnið þetta lið"

Eva eftir leik í TM Hellinum “Við getum alveg unnið þetta lið”

ÍR lagði Tindastól í kvöld í fyrsta leik átta liða úrslita viðureignar liðanna í fyrstu deild kvenna, 80-66. Þar sem aðeins þarf tvo leiki til að komast áfram í undanúrslitin þarf ÍR því aðeins einn sigurleik í viðbót, en næsti leikur liðanna er komandi sunnudag 16. maí í Síkinu á Sauðárkróki.

Tölfræði leiks

Karfan spjallaði við Evu Wium Elíasdóttur, leikmann Tindastóls, eftir leik í TM Hellinum. Eva átti stórgóðan leik fyrir Stólana þrátt fyrir tapið, skilaði 21 stigi, 5 fráköstum, 5 stoðsendingum og 6 stolnum boltum.

Viðtal / Helgi Hrafn

Fréttir
- Auglýsing -