spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaSpámenn Körfunnar með efsta sætið rétt í 1. deild kvenna - Fjölnir...

Spámenn Körfunnar með efsta sætið rétt í 1. deild kvenna – Fjölnir b og Ármann komu mest á óvart

Líkt og síðustu tímabil setti Karfan upp spá fyrir deildarkeppnina í efstu deildum þar sem sérfræðingar og pennar Karfan.is settu sig í spámannssætið og stóðu sig með ágætum.

Spámenn Körfunnar voru ekki svo fjarri lagi í 1. deild kvenna. Þeir voru með efsta sætið rétt en Njarðvík varð deildarmeistari. Næstu tvö sæti voru rétt en í rangri röð. Fjölnir b og Ármann voru hástökkvarar tímabilsins en liðunum var spáð neðstu tveimur sætum. Á sama tíma olli Tindastóll mestum vonbrigðum en munurinn var fjögur sæti.

Spánna og lokastöðuna má finna hér að neðan:

Spáin:

  1. Njarðvík – 8.4
  2. Grindavík – 7.93
  3. ÍR – 6.8
  4. Tindastóll – 5.93
  5. Hamar/Þór – 4.2
  6. Stjarnan – 3.93
  7. Vestri – 2.87
  8. Ármann – 2.60
  9. Fjölnir B – 2.33

Lokastaða og sætamunur frá spánni:

  1. Njarðvík (-)
  2. ÍR (+1)
  3. Grindavík (-1)
  4. Fjölnir B (+5)
  5. Ármann (+3)
  6. Hamar/Þór (-1)
  7. Stjarnan (-1)
  8. Tindastóll (-4)
  9. Vestri (-2)
Fréttir
- Auglýsing -